Um síðustu helgi fór fram Winter Wonderland sýning HRFÍ. Metskráning var á sýninguna og jafnframt innan tegundar. Við áttum okkar fulltrúa þar sem stóðu sig öll með sóma, fengu fallegar umsagnir frá dómara tegundar og erum við ákaflega stolt af fallegum fulltrúum tegundar.
Ungviðaflokkur:
Ungliðaflokkur:
Öldungaflokkur:
Víkurræktun fór með ræktunarhóp sem samanstóð af Heklu, Stormi og Sunnu og hlutu þau heiðursverðlaun. Izzy tók þátt í keppni í yngri flokki ungra sýnenda með Melkorku vinkonu sinni og geisluðu þær saman í hringnum og skilaði það þeim 1 sæti í feikna sterkri keppni en um 20 keppendur voru skráðir til leiks. Þetta er síðasta ár Melkorku í yngri flokki og verður gaman að fylgjast með þeim spreyta sig í eldri flokki á næsta ári. Gimsteinarnir urðu 9 mánaða daginn fyrir sýningu og tóku því þátt í ungliðaflokki í fyrsta sinn og var gaman að sjá þau spreyta sig á móti mun eldri einstaklingum og standa sig með sóma og ekki hægt að segja annað en að framtíðin sé björt hjá þeim. Sýningin gekk í alla staði vel og á sýningarstjórn og þeir er komu að sýninginni skilið hrós fyrir frábært starf. Erum ákaflega stolt af glæsilegum árangri hjá öllum gullmolunum og erum eigendum þeirra ákaflega þakklát fyrir að nenna að stússast í þessu með okkur. Elsku Gauja, Thelma Dögg, Theodóra og Bergdís takk fyrir alla hjálpina þessum glæsilega árangri væri ekki náð án ykkar aðkomu að þessu.
0 Comments
Á Sýningu Fjár- og hjarðhundadeildar um síðustu helgi hlaut Izzy þriðja og síðasta öldungameistarastigið sitt en fyrri stigin tvö hafði hún fengið á tvöföldu sýningunni í ágúst s.l. Þar með hefur hún hlotið titilinn íslenskur öldungameistari og fetar þar með í fótspor foreldra sinna sem voru fyrstu áströlsku fjárhundarnir hér á landi til að öðlast þennan titil. Hún er jafnframt fyrsti hundurinn ræktaður af okkur sem hlýtur þennan titil. Hún bætir því ISVetCH í titlasafnið og ber því ræktunarnafnið C.I.B. ISVetCH ISCH NLM RW-18 RW-21 Víkur American Beauty. Takk elsku Gauja og Theodóra fyrir að sýna prinsessuna okkar alltaf svona vel og fyrir að ná þessum frábæra árangri með hana. -------------- At the Herding Club Show last weekend Izzy earned herself her last veteran CC and is therefor a new Icelandic Veteran Champion, ISVetCH. She follows in her parents footsteps by gaining this title and is our first bred veteran champion. She has been a really successful show dog and can now call herself C.I.B. ISVetCH ISCH NLM RW-18 RW-21 Víkur American Beauty. Big thanks to our dearest Gauja and Theodóra that have shown her for us since puppy classes. Síðasta laugardag fór fram Sýning Fjár- og hjarðhundadeildar að Sunnuhvoli í Ölfusi. VIð áttum nokkra fulltrúa þar og stóðu þau sig öll með prýði. Þau fengu mjög fallegar umsagnir hjá dómara sýningarinnar sem var Marianne Birte Baden frá Danmörku.
Ungviðaflokkur:
Hvolpaflokkur:
Opinn flokkur:
Öldungaflokkur:
Víkurræktun fór með ræktunarhóp sem samanstóð af Izzy, Stormi og Heklu og hlutu þau heiðursverðlaun. Þær Hekla og Izzy létu sér ekki nægja að fara í ræktunardóm í tegund heldur tóku þær báðar þátt í ungum sýnendum. Izzy tók þátt í yngri flokknum með Melkoru vinkonu sinni og höfnuðu þær í 2 sæti. Frábær árangur hjá Melkorku í sinni fyrstu keppni í ungum sýnendum. Hekla brá sér í hringinn í eldri flokknum með Bergdísi vinkonu sinni og gerðu þær sér lítið fyrir og sigruðu keppnina. Frábær árangur hjá Bergdísi og Melkorku og óskum við þeim innilega til hamingju. Dagurinn var langur en skemmtilegur og heppnaðist sýningin í alla staði vel og á stjórn deildarinnar hrós skilið fyrir hana. Þessum góða árangri okkar væri að sjálfsögðu ekki náð nema með aðstoð góðra vina, eigenda hundanna og okkar frábæru sýnenda en þær Gauja, Theodóra og Ylfa Dögg stóðu vaktina fyrir okkur. Við óskum þeim og eigendum hundanna innilega til hamingju með frábæra helgi ásamt því að þakka þeim öllum, Bergdísi og Melkorku fyrir alla hjálpina um helgina. Þið eruð best <3 Í dag fagnar Sofie 4 ára afmælinu sínu. Hún er búin að láta dekra við sig síðan hún vaknaði í morgun og liggur í andlegri íhugun þessa stundina. Hún er einstakur gleðigjafi, síkát, alltaf tilbúin í leik eða vinnu og er hún frábær viðbót við fjölskylduna okkar. Hún er fædd í Frakklandi hjá Alyson Ferriére og kemur því frá sömu ræktun og Melody en dvaldi hjá Theodóru afmælissystur sinni í Þýskalandi þar til hún varð 7 mánaða gömul og mátti koma heim. Stærsta afrek hennar síðasta árið var að verða mamma í lok febrúar en þá eignuðust hún og Fayro 6 gimsteina, 4 tíkur og 2 rakka. Um síðast liðna helgi afrekaði hún það að fara út fyrir þægindarammann sinn og á sína fyrstu sýningu þar sem hún stóð sig með sóma. Dagurinn verður eflaust fullur af dekri, leik og gleði eins og henni er einni lagið líkt og verður eitthvað extra gott sett á diskinn hennar í kvöld. Til hamingju með daginn elsku besta Sofie okkar <3 Today our precious Sofie celebrates her 4th birthday. We of course have been spoiling her since she woke up this morning and at the moment she is meditating. She is such a great girl always with a smile on her face and ready to play or work but loves nothing more than cuddling on the sofa. She is bred by Alyson Ferriére in France but stayed with her birthday sister our dearest Theodóra in Germany until she became 7 months old and could come to Iceland. Her biggest achievement the last year is giving birth to 6 beautiful gemstones, 4 girls and 2 boys, after Fayro. Last weekend she went out of her comfort zone and took part in her first breeding show. She did great and made us so proud of her. Her day will be full of pampering, playtime and happy moments as that describes her the best and she will get some extra treats with her dinner tonight. Happy Birthday dear Sofie, we love you to the moon and back <3 Þessi mikli meistari á afmæli í dag og fagnar hann 7 ára afmælinu sínu. Við erum ákaflega heppin að hafa hann hér hjá okkur og verðum kærum vini okkar, Marko Ljutic, ævinlega þakklát fyrir að treysta okkur fyrir þessum einstaka gullmola. Lífsgleði hans fær mann alltaf til að brosa þar sem hann er einn glaðasti hundur sem ég hef kynnst og hann sýnir manni ást sína alltaf svo innilega. Hann hefur gefið okkur 9 falleg afkvæmi og vonandi mun fjölga í hópi þeirra á næsta ári. Við munum vera dugleg að knúsa hann í dag, hann fær að sjálfsögðu eitthvað gott að borða og eins og eitt nýtt leikfang. En næst á dagskrá er göngutúr í sveitinni með öllum uppáhalds skvísunum hans 🥰 This one of a kind dog celebrates his 7th birthday today. We are so lucky to have him here with us and will be forever thankful to our dear friend Marko for trusting us with this gem. He always puts a smile on your face as he is one of the happiest dogs I have met and he shows his love for you so strongly. He has given us 9 beautiful offsprings and hopefully their number will increase next year. We will give him endless cuddles today, he will get extra treats, some new toys but next on the agenda is a birthday walk at the country side with all his favorite girls 🥰 Í dag fagna Izzy og systkini hennar úr Kvikmyndagotinu 9 ára afmælinu sínu. Kvikmyndagotið er annað gotið fætt okkur og voru þau alls 11, 6 rakkar og 5 tíkur. Foreldrar þeirra voru fallegu englarnir okkar þau Reese og Chase.
Þau fengu öll alveg yndisleg heimili þar sem þau hafa upplifað endalaus ævintýri með sínu besta fólki og að sjálfsögðu fengið endalaust dekur. Því miður fækkaði um einn gullmola í systkinahópnum síðasta árið en Bósi fór yfir í draumalandið til Jöklu, Ronaldo, Rófu, Smala, Smára og Týs og er mikill söknuður að honum sem og hinum systkinum hans. Elsku Doddi, Gríma, Píla og Izzy til hamingju með daginn ykkar og eigið góðan dag með ykkar besta fólki. Við kveikjum á kerti fyrir systkini ykkar, mömmu og pabba sem munu án efa eiga góðan dag í draumalandinu með eldri systkinum ykkar og frændsystkinum. Kossar og knús á ykkur öll 😘❤️🐾 Í dag var seinni dagur á tvöfaldri sýningarhelgi hjá HRFÍ og var alþjóðleg sýning í dag. Við áttum að sjálfsögðu okkar fulltrúa þar eins og í gær og stóðu þau sig öll mjög vel og voru okkur ræktendum og tegundinni til sóma.
Gimsteinarnir fæddir 26.02.2021:
Draumabörnin fædd 20.04.2019:
Kvikmyndagotið fætt 05.09.2012:
Víkurræktun fór með ræktunarhóp sem samanstóð af Izzy, Stormi og Heklu og varð hann BESTI RÆKTUNARHÓPUR TEGUNDAR með heiðursverðlaun. Þessum frábæra árangri væri að sjálfsögðu ekki náð nema með aðstoð góðra vina og aðstoð frá eigendum hundanna. Við erum endalaust þakklát fyrir okkar frábæru sýnendur þær Gauju og Ylfu sem báru höfuð og herðar af árangri helgarinnar og hefði þetta aldrei náðst nema fyrir tilstilli þeirra þar sem við sjálf gátum ekki verið með um helgina. Við óskum þeim og eigendum hundanna innilega til hamingju með frábæra helgi ásamt því að þakka þeim öllum og Thelmu fyrir alla hjálpina um helgina. Þið eruð best <3 Fyrsta hundasýning ársins fór fram í dag. Til að hægt væri að fara eftir öllum sóttvarnarlögum fór sýningin fram á tveimur sýningarsvæðum, Víðistaðatúni í Hafnarfirði og Víðidal í Reykjavík og var Aussie sýndur á Víðistaðatúni. Við áttum 7 fulltrúa í tegundinni og ekki hægt að segja annað en þau hafi öll staðið sig frábærlega og verið ræktuninni okkar og tegund til sóma.
Fjórir hvolpar úr Gimsteinagotinu tóku þátt í sýningunni og stóðu þau sig öll ljómandi vel. Sýndu sig öll mjög fallega, fengu öll sérlega lofandi í einkunn og mjög fallegar umsagnir. Besta ungviði tegundar var hún Sunna (Víkur Black Pearl) sýnd af eiganda sýnum Andreu Björk Hannesdóttur.
Tvö Draumabörn tóku jafnfram þátt í sýningunni og stóðu þau sig stórvel og fengu þau bæði mjög fallegar umsagnir og excellent í einkunn.
Kvikmyndagotið átti líka sinn fulltrúa og ekki annað hægt að segja en hún hafi staðið sig ljómandi vel í fyrsta sinn í öldungaflokki rétt tæplega 9 ára gömul.
Víkurræktun fór með ræktunarhóp sem samanstóð af Izzy, Heklu og Stormi og varð hann BESTI RÆKTUNARHÓPUR TEGUNDAR með heiðursverðlaun. Við erum endalaust þakklát fyrir okkar frábæru sýnendur þær Gauju og Ylfu sem báru höfuð og herðar af árangri dagsins og hefði þetta aldrei náðst nema fyrir tilstilli þeirra þar sem við sjálf gátum ekki verið með í dag. Við óskum þeim og eigendum hundanna innilega til hamingju með frábæran dag og hlökkum til að knúsa þau öll fast í tilefni dagsins. Fyrstu súkkulaðibörnin fóru að heiman á fimmtudaginn þegar þau urðu 9 vikna gömul og eru alltaf blendnar tilfinngar sem þjóta um hugann á þeim tímapunkti. Þessi brottfarardagsetning var samt vel við hæfi því þann dag var akkúrat liðið ár frá því pabbi þeirra kom út úr einangrun og hingað heim.
Það voru þau Víkur Chocolate Creme Brulée "Yrja" og Víkur Chocolate Velvet "Varmi" sem fóru fyrst af bæ. Í dag fór svo Víkur Dark Chocolate "Perla" til nýrra eigenda. Við erum þakklát fyrir 9 dásamlegar vikur með þessum gullmolum, þakklát fyrir þau frábæru heimili sem opnuðu arma sína fyrir þeim og síðast en ekki síst þakklát Marko Ljutic fyrir að treysta okkur fyrir þessum einstaka gullmola sem pabbi þeirra er. Við óskum nýjum eigendum innilega til hamingju með gullmolana sína og bjóðum þau jafnframt velkomin í Víkurfjölskylduna. Súkkulaðibörnin urðu 7 vikna í gær og fengu þau að sjálfsögðu myndatöku af því tilefni í dag.
Síðustu dagar hafa verið viðburðaríkir hjá þríeykinu. Þau eru búin að fara nokkra rúnta, skelltu sér í bað, hittu fullt af nýju fólki sem þau heilluðu upp úr skónum, eru búin að eyða ófáum klukkustundum á dag úti að leika sér og skoða umhverfið og síðast en ekki síst eru þau mjög upptekin við að stækka og þroskast. Næstu vikuna ætla þau að halda áfram að hitta nýtt fólk, fara í vettvangsferðir hér í nærumhverfinu, fara í skapgerðarmat og stækka aðeins meira ásamt því að fara í 8 vikna skoðun. |
Archives
April 2024
|