Þessi mikli meistari á afmæli í dag og fagnar hann 7 ára afmælinu sínu. Við erum ákaflega heppin að hafa hann hér hjá okkur og verðum kærum vini okkar, Marko Ljutic, ævinlega þakklát fyrir að treysta okkur fyrir þessum einstaka gullmola. Lífsgleði hans fær mann alltaf til að brosa þar sem hann er einn glaðasti hundur sem ég hef kynnst og hann sýnir manni ást sína alltaf svo innilega. Hann hefur gefið okkur 9 falleg afkvæmi og vonandi mun fjölga í hópi þeirra á næsta ári. Við munum vera dugleg að knúsa hann í dag, hann fær að sjálfsögðu eitthvað gott að borða og eins og eitt nýtt leikfang. En næst á dagskrá er göngutúr í sveitinni með öllum uppáhalds skvísunum hans 🥰 This one of a kind dog celebrates his 7th birthday today. We are so lucky to have him here with us and will be forever thankful to our dear friend Marko for trusting us with this gem. He always puts a smile on your face as he is one of the happiest dogs I have met and he shows his love for you so strongly. He has given us 9 beautiful offsprings and hopefully their number will increase next year. We will give him endless cuddles today, he will get extra treats, some new toys but next on the agenda is a birthday walk at the country side with all his favorite girls 🥰
0 Comments
Í dag fagna Izzy og systkini hennar úr Kvikmyndagotinu 9 ára afmælinu sínu. Kvikmyndagotið er annað gotið fætt okkur og voru þau alls 11, 6 rakkar og 5 tíkur. Foreldrar þeirra voru fallegu englarnir okkar þau Reese og Chase.
Þau fengu öll alveg yndisleg heimili þar sem þau hafa upplifað endalaus ævintýri með sínu besta fólki og að sjálfsögðu fengið endalaust dekur. Því miður fækkaði um einn gullmola í systkinahópnum síðasta árið en Bósi fór yfir í draumalandið til Jöklu, Ronaldo, Rófu, Smala, Smára og Týs og er mikill söknuður að honum sem og hinum systkinum hans. Elsku Doddi, Gríma, Píla og Izzy til hamingju með daginn ykkar og eigið góðan dag með ykkar besta fólki. Við kveikjum á kerti fyrir systkini ykkar, mömmu og pabba sem munu án efa eiga góðan dag í draumalandinu með eldri systkinum ykkar og frændsystkinum. Kossar og knús á ykkur öll 😘❤️🐾 |
Archives
May 2024
|