Í dag fagna Draumabörnin fjórða afmælinu sínu. Þau fæddust að kvöldi 20. apríl 2019, 5 tíkur og 2 rakkar. Þrátt fyrir að þetta væri hennar fyrsta got sá Melody alfarið um þetta sjálf og var eins og hún hefði aldrei gert annað. Foreldrar Draumabarnanna eru þau Melody okkar (ISCH Melody Time De La Vallée d'Eska og Ben (CIB ISCH RW-15 RW-18 Bayshore Stonehaven Iceland Here I Come) og eru þau glæsilegir fulltrúar foreldra sinna og tegundarinnar hvar sem þau koma og gaman að sjá hvað þau eru öll skemmtilegar blöndur af foreldrum sínum. Þau upplifðu öll sín ævintýri á liðnu afmælisári og af okkar gullum er það helst að frétta að Hekla og Kvika stóðu sig frábærlega í sýningarhringnum. Hekla varð íslenskur meistari á deildarsýningunni í fyrrasumar þegar hún varð besti hundur tegundar. Kvika átti líka góðu gengi að fagna en hún er komin með tvö íslensk stig og á því bara eitt eftir í að verða meistari. Hún náði þeim glæsilega árangri að verða 2 besta tík tegundar nú í mars. Systkini þeirra héldu áfram að láta ljós sitt skína í öllum þeim verkefnum sem þau tóku sér fyrir hendur og skópu góðar minningar með fjölskyldum sínum. Hekla eyddi deginum að mestu í uppáhaldssveitinni okkar þar sem hún naut þess að vera til. Systkinin fengu að sjálfsögðu öll sín draumaheimili þar sem þau eru elskuð og dekruð út í eitt alla daga. Elsku Mía, Esja, Gosi, Kvika, Stormur og Kolka innilega til hamingju með afmælið og eigið góðan dag með ykkar besta fólki í dag eins og alla aðra daga. Mamma ykkar, Hekla og við hin sendum ykkur risaknús í tilefni dagsins, við elskum ykkur öll <3
1 Comment
|
Archives
May 2024
|