Þá eru Marley og Theodóra búin að vera í Þýskalandi í nokkra daga og gekk ferðalagið þeirra allt mjög vel. Dvölin leggst mjög vel í þau og er Marley alsæll með þýska hundamenningu og elskar að geta tekið þátt í öllu og mega vera svo gott sem alls staðar. Hann er strax byrjaður að heilla alla sem hann hittir og hafa Þjóðverjar verið duglegir að hrósa honum fyrir prúða og yfirvegaða framkomu hvar sem hann kemur. Hlökkum til að fá fleiri fréttir af ævintýrum þeirra :) Marley and Theodóra have now been in Germany for few days and their travel over there was without any difficulties. They are very happy with their stay there and Marley loves German dog culture and loves being able to take part in all day to day activities and to be able to be almost everywhere. He charms everyone he meets and the people have praised him for how calm and balanced his appearance is. Looking forward to hear more about their adventures :)
2 Comments
Það er farið að styttast í að þessi gullmoli okkar leggi land undir fót og flytji til Þýskalands með mömmu sinni og meðeiganda okkar, Theodóru. Marley og Theodóra munu dvelja í þar næstu árin og verður gaman að fylgjast með því hvað þau munu bralla á meginlandinu í framtíðinni. CIB ISCH Víkur Bob Marley "Marley" er fæddur 02.02.2012 og er úr fyrsta gotinu fæddu okkur og er hann undan drottningunni á heimilinu henni Reese "ISVetCH ISCh RW-14 Thornapple Seduction" okkar og Heimsenda Ösku Íllum "Þengli". Hann er búinn að gera góða hluti á sýningum hér á landi og varð hann fyrsti hundurinn úr okkar ræktun bæði til að verða íslenskur meistari og alþjóðlegur meistari ásamt því að vera fyrsti rakkinn ræktaður á Íslandi til að ná alþjóðlegum meistaratitli. Við erum ákaflega stolt af honum og hans árangri í sýningarhringnum sem og í sínu lífi. Marley og Theodóra náðu einstaklega vel saman strax við fyrstu kynni en þeirra einstaka samband hófst fyrir um 4 1/2 ári þegar hún fékk hann fyrst lánaðan á landsliðsæfingu. Þá sáum við strax að það væri einhver neisti á milli þeirra og að hann yrði aldrei hundurinn okkar eftir það. Því ákváðum við að gera hana að meðeiganda okkar í honum og fór hann að dvelja langdvölum hjá henni allt þar til hann flutti endanlega til hennar og kemur bara til okkar helgi og helgi í pössun. Í augum Marley á hann bara eina mömmu, hann er tilbúinn að gera allt fyrir hana og er bara hálfur hundur þegar hún er ekki nálægt og þegar hún er nálægt sér hann ekki tilgang í að hlusta á aðra sem reyna að segja honum til eða fá hann til að gera eitthvað því mamma hans sagði honum ekki að gera það. Ást þeirra á hvort öðru er einstök og sjá þau ekki sólina fyrir hvort öðru <3 Elsku Theodóra og Marley góða ferð og njótið þess að vera til. Við vitum að þið eigið eftir að gera okkur stolt af ykkur hvar sem þið komið. Elskum ykkur <3 In few days this precious boy of ours will be moving to Germany with his mom and our co owner, Theodóra. They will be living there for the next few years and we can't wait to hear about their adventures overseas.
CIB ISCH Víkur Bob Marley "Marley" is born 02.02.2012 and is from our first born litter. His parents are our beauty queen Reese "ISVetCH ISCH RW-14 Thornapple Seduction" and Þengill "Heimsenda Ösku Íllur". He has been doing great in shows here in Iceland. He is our first bred Icelandic Champion and also our first bred International Champion among being the first male bred in Iceland that becomes International Champion. We are extremely proud of him and his achievements in the show ring as well as in life. Marley and Theodóra made a strong connection at first sight, but they started to train together 4 1/2 year ago when she got him borrowed for a training with the Icelandic junior handling national team. After that we saw that there was a certain spark between them and that he would never be our dog again. So we decided to make her a co owner with us and he started to stay with her for a day and day that became long weekends and at the end he moved in with her. In Marley's eyes he only has one mother, he does everything for her and is just the half of himself when she is not around and when she is around he does not see the point in doing something for others because mom did not tell him to do it. Their love for each other is unique and they live for each other. Dear Theodóra and Marley have a safe trip and enjoy the adventures that are awaiting you. We know that you will make us proud of you where ever you go. We love you <3 |
Archives
May 2024
|