Þessi mikli snillingur fagnar 11 ára afmælinu sínu í dag, 15. janúar. Það er ekki hægt að segja annað en að hann hafi verið hvers manns hugljúfi frá því hann kom til okkar fyrir tæpum sjö árum og betri vin og félaga er ekki hægt að hugsa sér. Hann er einstök fyrirmynd sama hvort um ræðir fyrir börnin hans, afabörn eða hina hundana á heimilinu. Hann tekur öllu af stóískri ró og er lítið fyrir að æsa sig útaf hlutunum. Hann er barngóður með eindæmum og er uppáhald allra barna sem kynnast honum. Hann er alltaf til í að kúra á gólfinu með vini eða vinkonu og í skiptum fyrir gott klór eða jafnvel smá nammibita. Eins og þeir sem þekkja hann vita er hann einn mesti bangsasjúklingur sem um getur og ætlar það ekki að eldast af honum, eykst bara með árunum. Það er eins með matinn og bangsana ástriða hans eykst bara með árunum og er góður hrossakjötsbiti í miklu uppáhaldi hjá honum. Hann verður dekraður í dag sem og aðra daga og verður gott sófakúr, leikur í snjónum og góður kjötbiti á dagskrá hjá okkur í dag. Til hamingju með daginn elsku besti Chase okkar, elskum þig endalaust og takk Ellen og Amy fyrir að senda þennan einstaka gullmola til okkar <3 -------------- Today we celebrate the 11th birthday of the King of the house. He has been our best friend and partner since he arrived at our home almost seven years ago. He is the best role model for his kids, his grandchildren and the other dogs at our house. He is great with children and is every child's favorite. He is always willing to cuddle in the sofa or at the floor with a dear friend. He takes everything with a lot of tranquility and does not let things bother him. As those of you who know him know he loves his teddy bears to the moon and back and that is a love that increases each year. It is the same with food as teddy bears it is a passion that increases every year and a good peace of meat is his all time favorite. He will be treated today as the king he is as every day. Good peace of meat, playing out in the snow and a lot of cuddling on the sofa will be on our schedule today. Happy Birthday our precious Chase, we love you to the moon and back and thank you Ellen and Amy for trusting us with this precious boy of ours <3
1 Comment
|
Archives
May 2024
|