Nú um helgina fór fyrsta sýning ársins fram. Það var fámennur en góðmennur hópur sem fór frá okkur á sýninguna. Við mættum með þær mæðgur Izzy og Blue og gekk þeim ljómandi vel.
Eftir sýninguna á sunnudaginn fórum við með mæðgurnar í smá myndatöku hjá Önnu Szabó frá Ungverjalandi og erum við mjög spennt að sjá útkomuna úr því seinna í vikunni. En við fengum að taka myndirnar í hesthúsinu hjá góðum vinum okkar þeim Eddu Rún og Sigga Matt sem reka Ganghesta, alhliða hestamiðstöð ásamt Reiðskóla Reykjavíkur. Það bættist að vísu einn laumufarþegi inn á sumar myndirnar en það er hryssa úr okkar ræktun, Þórdís frá Árbæ. Erum endalaust þakklát fyrir þann breiða og glæsilega hóp sýnenda sem eru í þessu með okkur. Theodóra var komin alla leið frá Þýskalandi til að vera með okkur og sýndi þær mæðgur í dóm. Theodóra hljóp síðan með Izzy inn í úrslit og hún Ylfa okkar tók Blue. Síðan voru Gauja og Thelma með mér á hliðarlínunni. Kærar þakkir fá Petmark umboðsaðili Eukanuba á Íslandi og 4 loppur umboðsaðili Chris Christensen á Íslandi fyrir þeirra stuðning. Takk öll þið hin fyrir dyggan stuðning við okkur í gegnum tíðina <3 Last weekend we had the first show of the year here in Iceland. We only had two representatives from our breeding but they both did really good. We took Izzy and her daughter Blue.
After the show on Sunday we took mother and daughter to a photo shoot with Anna Szabó from Hungary and we can't wait to see the photos later this week. We got to take the pictures in our dear friends, Edda Rún and Siggi Matt, stable but they run Ganghestar a horse center and the riding school, Reiðskóli Reykjavíkur, during the summer time. There was one more addition of our breeding that took part in the photo shoot but a mare bred by us, Þórdís frá Árbæ, that is in training by Siggi and Edda sneaked into some photos. Huge thanks to our Theodóra that came all the way from Germany to be with us and showed both mother and daughter and to Ylfa that took Blue into the finals and to our Gauja and Thelma that were on the sideline with me. Big thanks to Petmark, Iceland's distributor for Eukanuba, 4 loppur, Iceland's distributor for Chris Christensen, and to all of you thank you for your support <3
0 Comments
Í dag fagnar Melody okkar 3ja ára afmælinu sínu og að sjálfsögðu sungum við afmælissönginn fyrir hana í morgunsárið. Hún er einstaklega lífsglöð og er litla fiðrildið okkar. Hún er fædd í Frakklandi hjá Alyson Ferriére en dvaldi hjá vinum okkar í Þýskalandi þar til hún varð 7 mánaða gömul og mátti koma heim. Fáum við Alyson seint þakkað að hafa sent okkur þennan einstaka gleðigjafa sem smellpassaði inn í ferfættu fjölskylduna okkar. Melody verður dekruð í dag eins og alla daga og verður eitthvað extra gott sett á diskinn hennar í kvöld. Til hamingju með daginn elsku besta Melody okkar <3 ---------------------------- Today our precious Melody celebrates her 3rd birthday and of course we sang the birthday song for her this morning. Our little butterfly is always so happy, positive and her smile makes every day a better day. She is bred by Alyson Ferriére in France but stayed with our friends in Germany until she became 7 months old and could come to Iceland. We are so thankful to you, dear Alyson, for trusting us with this precious little girl that fits so well into our four legged family. She will get a lot of extra hugs and kisses today and some extra treats with her dinner tonight. Happy Birthday dear Melody, we love you <3 Þessi mikli snillingur fagnar 5 ára afmælinu sínu í dag. Hún er einn af þeim hundum sem fær mann alltaf til að brosa þar sem hún er einstaklega lífglöð, kát, opin, skemmtileg og námsfús. Eins mikið og hún elskar að vera skítug upp fyrir haus og velta sér upp úr alls kyns ósóma sem hún finnur utandyra veit hún ekkert betra en gott sófakúr. Hún er fædd í Króatíu og kom til okkar í október 2014 eftir að hafa verið í pössun í Belgíu hjá vinkonum okkar í nokkra mánuði. Við fáum Marko Ljutic ræktanda hennar seint þakkað fyrir að treysta okkur fyrir þessum einstaka gullmola sem einfaldlega gerir alla daga betri. Hún verður dekruð í dag eins og alla daga og fær eitthvað uppáhalds að borða í kvöld. Til hamingju með afmælið elsku besta Misty okkar <3 ------- This precious gem of ours celebrates her 5th birthday today. She is one of those dogs that always bring a smile on your face. She is always happy, she is open, fun to be with and always willing to learn. As much as she loves to be dirty and roll over in the mud or some other bad things she finds outside she just loves to cuddle on the sofa. She is born in Croatia and came to us in October 2014 after staying with dear friends in Belgium for few months. We are so thankful to Marko Ljutic her breeder for trusting us with this little gem of ours that makes every day a better day. Misty will be spoiled today as other days and will get some of her favorite food to eat tonight. Happy Birthday to you our dearest Misty <3 Tíminn flýgur hratt áfram en í dag fagnar fyrsta Víkur gotið 7 ára afmælinu sínu. Það var undir kvöldmat þennan dag fyrir 7 árum sem fyrsti hvolpurinn í okkar ræktun kom í heiminn og þegar leið á kvöldið voru þau orðin 8, 4 tíkur og 4 rakkar. Þau búa öll á góðum heimilum þar sem þau njóta þess að vera til, upplifa ævintýri og eru dekruð út í eitt. Elsku Kobbi, Johnny, Fróði, Zeta, Marley, Salma og Angara til hamingju með daginn ykkar og eigið góðan dag með ykkar besta fólki. Við kveikjum á kerti fyrir elsku Æsu sem mun án efa eiga góðan dag í draumalandinu með yngri systrum sínum. Mamma ykkar og við hin sendum ykkur öllum risaknús í tilefni dagsins :) ----------------- Time for sure flies but today we celebrate the 7th birthday of our very first litter. It was just before dinner on this day 7 years ago that the first Aussie bred by us was born and later that evening they were 8, 4 boys and 4 girls. They all are unique characters and each and everyone are loved and treasured by their families. They all make us proud of them every day and all have the best family's which will without doubt spoil them today as other days. Dear Kobbi, Johnny, Fróði, Zeta, Marley, Salma and Angara. Happy Birthday to all of you and we know that you will have a great birthday with your families. We will light a candle for dear Æsa and we know that she will have a great day in heaven with her younger sisters <3 Mom and all of us send a lot of hugs and kisses to all of you <3 |
Archives
May 2024
|