Suma daga er skemmtilegra að opna póstinn en aðra. Á dögunum færði pósturinn okkur tvo skemmtilega pósta með stuttu millibili. Fyrst kom staðfestingin á Norðurljósa meistaratitlinum, NLM, hennar Izzy og svo kom staðfestingin á alþjóðlega titlinum hennar, C.I.B..
Izzy er þriðji hundurinn í okkar eigu og annar hundurinn úr okkar ræktun til að hljóta alþjóðlegan meistara titil ásamt því að vera þriðji ástralski fjárhundurinn ræktaður á Íslandi til að hljóta hann. En hún er jafnframt fyrsti ástralski fjárhundurinn til að verða Norðurljósa meistari, NLM. Izzy er undan gullmolunum okkar þeim ISVetCh ISCh RW-14 Thornapple Seduction "Reese" og C.I.B. ISVetCh ISCh USCh Thornapple Good To Go "Chase". Hún er úr öðru gotinu okkar og varð 4 ára í byrjun september. Hún eins og pabbi sinn fékk fjórða Cacibið sitt á nóvembersýningunni. Izzy hefur átt góðu gengi að fagna á sýningum hér á landi en hún hefur tekið þátt í 11 sýningum í eldri flokkum og á 9 þeirra hefur hún hafnað í einu af þremur efstu sætunum í keppni um bestu tík tegundar. Hún hefur ávalt hlotið excellent, 10 sinnum hlotið meistaraefni, vann sér inn þátttökurétt á Crufts 2015 og 2016 og einu sinni hafnað í 4 sæti í tegundahópi. Í þau þrjú skipti sem hún tók þátt í hvolpaflokkum varð hún alltaf besta tík tegundar og varð einu sinni besti hvolpur tegundar og hafnaði þá í 4 sæti í keppni um besta hvolp sýningar. Izzy tók eingöngu þátt í tveimur sýningum á síðasta ári en hún brá sér í nýtt hlutverk síðasta vor þegar hún eignaðist 7 yndislega hvolpa. Nokkur þeirra hafa verið að stíga sín fyrstu skref á sýningum við góðan árangur. Við gætum ekki verið stoltari ræktendur og eigendur að þessari prinsessu okkar <3 We just love getting some great news by mail. Last week we had two happy dogmails. First from our kennel club with confirmation on Izzy's Northern Lights title, NLM, and then few days later the confirmation on her International Title from FCI. Izzy is the third dog owned by us to gain this title, the second dog bred by us to gain it and the third Aussie bred in Iceland to become International Champion. She is also the first Aussie to become Northern Lights Champion. Izzy's parents are our precious ISVetCh ISCh RW-14 Thornapple Seduction "Reese" and C.I.B. ISVetCh ISCh USCh Thornapple Good To Go "Chase". She as her father got her fourth Cacib at the November show. She has had great show career as she has taken part in 11 shows after puppy classes and in 9 of the she has been placed in top 3 best female. She has always got excellent, 10 times CK, was qualified for Crufts 2015 and 2016, and was once placed 4th in group 1. She took three times part in puppy classes and was 2 x BOS, 1 x BOB and 1 x Best in Show puppy 4. Izzy only took part in two shows last year as she became mother last spring when she gave birth to 7 beautiful puppies. Few of them have been taking their first steps in shows with great results. We could not be prouder breeders of this precious girl of ours <3
0 Comments
Í síðustu viku fengum við skemmtilegan póst frá FCI þegar staðfestingin á alþjóðlega meistaratitlinum, hans Chase kom.
Chase er annar hundurinn í okkar eigu til að hljóta þennan titil. Chase fluttum við inn frá Bandaríkjunum og eru foreldrar hans CH Thornapple Single Barrel "Cruzan" og CH Thornapple Freeze Frame "Icy", Hann hlaut sitt fjórða Cacib á nóvembersýningunni í fyrra þá tæplega 9 ára gamall. Chase var amerískur meistari þegar hann kom til landsins en hann hefur átt einstaklega góðu gengi að fagna á sýningum hér síðan hann kom til landsins en árið 2016 var hans besta ár til þessa en þá var hann Stigahæsti Australian Shepherd á Íslandi. Hann hefur tekið þátt í 21 sýningu hér á landi og ávallt hlotið excellent ásamt því að hafa verið í einu af 4 efstu sætunum í keppni um besta rakka tegundar í 18 skipti. Á síðustu 4 sýningum félagsins hefur hann verið valinn besti hundur tegundar, orðið í 1, 3 og 4 sæti í tegundahópi 1 ásamt því að hafa verið í 1, 3 og 4 sæti í keppni um besta öldung sýningar. Hann ávann sér jafnframt þátttökurétt á Crufts 2017. Við erum ákaflega stolt af þessum einstaka gullmola okkar, árangri hans á sýningum og hvar sem hann kemur. Við fáum ræktendum hans þeim Ellen og Amy seint fullþakkað að treysta okkur fyrir honum <3 Last week we got some really good new in the mail when we received the International Champion title confirmation for Chase. Chase is the second dog owned by us to gain this title. We imported him from the States few years ago and his parents are CH Thornapple Single Barrel "Cruzan" and CH Thornapple Freeze Frame "Icy". He received his fourth Cacib at the November show, almost 9 years old. Chase was already a champion in the States when he arrived but has had a great show career since he came to us but his best show year was in 2016 when he became Top Australian Shepherd in Iceland. He has taken part in 21 show here and always got excellent among being placed in top 4 male 18 times. At the last 4 shows here in Iceland he has been Best Of Breed, placed 1,3 and 4 in group 1 and placed 1, 3 and 4 in Best In Show Veteran. He was also qualified for Crufts 2017. We are so proud of our precious gem, his results at shows and where ever he comes. We are so thankful to his breeders Amy and Ellen at Thornapple for trusting us with our precious king <3 Fyrstu helgina í mars fór fram fyrsta sýning ársins hjá HRFÍ, Norðurljósasýningin og er ekki hægt að segja annað en að árið hafi byrjað vel hjá okkur. Chase varð besti hundur tegundar, ásamt því að hafna í 3 sæti í tegundahópi 1 og verða 3 besti öldungur sýningar, og síðan var dóttir hans Izzy valin besta tík tegundar. Er þetta 4 sýningin í röð sem Chase sigrar tegundina.
Við fórum jafnframt með ræktunarhóp sem samanstóð af hálfbræðrunum Marley og Smára ásamt systursyni þeirra hinum 9 mánaða Polari. Þeir voru valdir besti ræktunarhópur tegundar með heiðursverðlaun ásamt því að hafna í 3 sæti í keppni um besta ræktunarhópur dagsins. Það var Attila Czeglédi, Ungverjalandi, sem dæmdi tegundina og keppni um besta öldung sýningar, tegundahóp 1 dæmdi Kitty Sjong, Danmörku, og ræktunarhópa dæmdi Carl Gunnar Stafberg, Svíþjóð. Við þökkum þeim fyrir að kunna að meta gullin okkar og falleg orð í þeirra garð. Blue fór með Vöku vinkonu sinni í keppni ungra sýnenda á föstudagskvöldinu og stóðu þær sig alveg hreint frábærlega en þær höfnuðu í 2 sæti. Dómari í keppni ungra sýnenda var Daníel Örn Hinriksson. Þessum frábæra árangri væri ekki náð ef við værum ekki með hóp af góðu fólki í kringum okkur. Sendum okkar bestu þakkir til sýnendanna okkar, eigenda og ræktenda erlendis, gætum þetta ekki án ykkar <3 Last weekend we had the first show of the year here in Iceland, The Northern Lights Show, and what a great start of the show year for Team Vikur :)
Breed and BIS Veteran judge was Attila Czeglédi, Hungary, group judge was Kitty Sjong, Denmark, and breeders group judge was Carl Gunnar Stafberg, Sweden. Thanks to the judges for appreciating our precious babies and giving them all so beautiful critique :) Blue and Vaka did great in their first competition together in junior handling on Friday. They did super well together and were in 2nd place. Junior handling judge was Daníel Örn Hinriksson. Big thanks to all our handlers, owners and breeders abroad. This would not have been done without all of you and your help. Love you all and thank you for a great weekend <3 |
Archives
May 2024
|