Í dag fagna Draumabörnin 3ja ára afmælinu sínu. Þau fæddust að kvöldi 20. apríl 2019, 5 tíkur og 2 rakkar. Þrátt fyrir að þetta væri hennar fyrsta got sá Melody alfarið um þetta sjálf og var eins og hún hefði aldrei gert annað. Foreldrar Draumabarnanna eru þau Melody okkar (ISCH Melody Time De La Vallée d'Eska og Ben (CIB ISCH RW-15 RW-18 Bayshore Stonehaven Iceland Here I Come) og eru þau glæsilegir fulltrúar foreldra sinna og tegundarinnar hvar sem þau koma og gaman að sjá hvað þau eru öll skemmtilegar blöndur af foreldrum sínum. Þau upplifðu öll sín ævintýri á liðnu afmælisári og af okkar gullum er það helst að frétta að Hekla stóð sig frábærlega í sýningarhringnum og varð stigahæsta Aussie tík ársins 2021 og Kvika eignaðist þrjá súkkulaðisæta hvolpa í júní í fyrra. Þær og systkini þeirra héldu áfram að láta ljós sitt skína í öllum þeim verkefnum sem þau tóku sér fyrir hendur. Draumabörnin fengu að sjálfsögðu öll sín draumaheimili þar sem þau eru elskuð og dekruð út í eitt. Elsku Mía, Esja, Gosi, Kvika, Stormur og Kolka innilega til hamingju með afmælið og eigið góðan dag með ykkar besta fólki í dag eins og alla aðra daga. Mamma ykkar, Hekla og við hin sendum ykkur risaknús í tilefni dagsins, við elskum ykkur öll <3 --- Today the Dream litter celebrates its 3rd birthday. 5 females and 2 males, were born in the evening on April 20th 2019. Melody did great at her first litter and was for sure born to be mom. Their parents are our Melody (ISCH Melody Time De La Vallée d'Eska and Ben (CIB ISCH RW-15 RW-18 Bayshore Stonehaven Iceland Here I Come) and they are great representatives of the breed and their parents every where they go. It is so great to she how great mixture of both their parents they all are. The Dream litter of course all got their dream homes where they are loved and spoiled endlessly. Our dearest Mía, Esja, Gosi, Kvika, Stormur and Kolka happy birthday to you and have a great day with your families today as all days. Your mom, Hekla and all of us send you a huge hug and a lot of kisses. We love you all <3
0 Comments
Það er með miklu stolti sem við kynnum væntanlegt got hjá okkur. En þau Fayro (CH Bayouland's Hot N Mangry) og Sofie (Northern Black Pearl De La Valleé d'Eska) eiga von á hvolpum í lok apríl. Settur dagur á fæðingu hvolpanna er 26. apríl. Sofie er frönsk að uppruna en hún er ræktuð af Alyson Ferriere vinkonu okkar sem er með De La Vallée d'Eska ræktunina í Frakklandi. Fayro er bandarískur að uppruna en hefur búið undanfarin ár hjá vini okkar og meðeiganda að honum, Marko Ljutic í Króatíu sem er með Mangry's ræktunina. Þau eru bæði einstakir gullmolar og er gott klór og knús í miklu uppáhaldi hjá þeim báðum. Þar sem Sofie er beri að rauða litnum geta komið allir litir tegundar og Fayro er fæddur skottlaus því geta komið allar lengdir af skotti undan þeim. Þau uppfylla bæði allar heilbrigðiskröfur tegundar en eru auk þess DNA testuð fyrir öllum helstu sjúkdómum sem hægt er að prófa fyrir innan tegundar. Það er ekki hægt að segja annað en við séum mjög spennt fyrir þessu goti en Gimsteinarnir sem fæddust í febrúar í fyrra eru einnig undan þeim. Gimsteinarnir eru öll ákaflega vel heppnuð og verður gaman að sjá hvað fyrstu dagar sumars færa okkur. Allar nánari upplýsingar um gotið er að finna hér eða í gegnum tölvupóstfangið info@vikurkennel.com. ------------------ We proudly present our expected litter. Fayro (CH Bayouland's Hot N Mangry) and Sofie (Northern Black Pearl De La Valleé d'Eska) are expecting puppies by end of April.
Sofie is bred by our friend Alyson Ferriere in France. Fayro is bred in USA and lived for few years in Croatia with our friend and co-owner Marko Ljutic. They both are true gems and they love to cuddle and to be spoiled. As Sofie is red factored we can have all breed color variations and Fayro is born NBT so we can have all tail sizes. They both meet all breeding requirements and are also DNA tested for most of the diseases that can be tested for in the breed. We can only say that we are extremely excited for this litter as they will be full siblings to our Gemstone litter born in February last year. You can find further information about the litter here or through the email info@vikurkennel.com. Hin 2ja ára Hekla okkar (Víkur Dreams Do Come True) varð stigahæsta tík tegundar árið 2021 hjá Fjár- og hjarðhundadeild HRFÍ. Hún átti góðu gengi að fagna á síðasta ári þegar hún steig sín fyrstu skref í hringnum í opnum flokki eftir að sýningar fóru af stað aftur eftir covid hlé. Hún hafnaði í sæti í keppni um bestu tík tegundar á þremur af fjórum sýningum sem hún tók þátt í og hlaut sitt fyrsta meistarastig á árinu. Við erum óendanlega stoltir eigendur og ræktendur að þessum gullmola okkar og ekki hægt að segja annað en að hún eigi bjarta framtíð fyrir sér í hringnum í framtíðinni. Þessum glæsilega árangri hennar væri að sjálfsögðu ekki náð nema með góðan hóp af sýnendum í kringum okkur. Takk elsku Gauja, Theó, Ylfa Dögg og Bergdís fyrir að sinna henni svona vel og ná alltaf því besta fram hjá henni í hringnum <3 Our 2 year old Hekla "Víkur Dreams Do Come True" was Top Australian Shepherd female 2021 at our Kennel Club.
She did great in the show ring last year after the shows started again after covid break. She got best female placement at three shows out of four she took part in and got her first CC. We are extremely proud breeders and owners of this precious girl and she has for sure bright future ahead in the show ring. Big thanks to our great team of handlers that made this all possible and for making Hekla shine in the ring at every show <3 Trúi því varla að það sé komið eitt ár síðan Gimsteinarnir komu í heiminn. Fæðing þeirra gekk eins og í sögu og innan við 3 tímum eftir að fyrsti hvolpurinn kom í heiminn voru þau orðin sex, fjórar tíkur og tveir rakkar. Sofie stóð sig frábærlega í uppeldinu og var eins og hún hefði aldrei gert annað. Fayro stóð eins og stytta við hliðina á henni og veitti henni andlegan stuðning af hliðarlínunni á meðan hún sá um börnin. Þau fengu öll frábær heimili þar sem þau eru elskuð til tunglsins og til baka. Elsku Lúna, Viggó, Manni, Sunna og Katla til hamingju með daginn ykkar og ég veit að þið fáið eitthvað gott að borða í tilefni dagsins. Karma systir ykkar, mamma ykkar, pabbi ykkar og við hin sendum ykkur öllum risa knús í tilefni dagsins. Fallega fiðrildið okkar hún Melody er eitt af afmælisbörnum febrúarmánaðar á okkar heimili en hún fagnar 6 ára afmælinu sínu í dag.
Hún er fædd í Frakklandi hjá Alyson Ferriére en dvaldi hjá vinum okkar í Þýskalandi þar til hún varð 7 mánaða gömul og mátti koma heim til Íslands. Við fáum Alyson seint þakkað að hafa sent okkur fallega fiðrildið okkar. Melody er mamma Draumagotsins og varð amma í fyrra en Kvika dóttir hennar og Fayro eignuðust 3 mola í Súkkulaðigotinu í júní og Mía dóttir hennar eignaðist síðan 5 hvolpa í lok ágúst hjá eiganda sínum. Melody verður dekruð í dag eins og alla daga og verður eitthvað extra gott sett á diskinn hennar í kvöld. Til hamingju með daginn elsku besta Melody okkar <3 ------------- Our beautiful butterfly, Melody, is one of February's birthday babies as she celebrates her 6th birthday today. She is bred by Alyson Ferriére in France but stayed with our friends in Germany until she became 7 months old and could come to her future home here in Iceland. We are so thankful to you, dear Alyson, for trusting us with this precious little girl that fits so well into our four legged family. She is the mother of our Dream litter and she became grandmother last year when here daughter Kvika and Fayro had 3 precious puppies in the Chocolate litter and her daughter Mía had 5 puppies at her owners. She will get a lot of extra hugs and kisses today and some extra treats with her dinner tonight. Happy Birthday out dearest Melody, we love you <3 Veðurguðinn hefur verið duglegur að deila snjónum með okkur núna í febrúar og leiðist ferfætlingunum hér á bæ það alls ekki. Þau vita fátt skemmtilegra en að leika sér og njóta sín i snjónum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Í dag eru 10 ár síðan fyrsta gotið í okkar ræktun fæddist, Stjörnugotið. 8 heilbrigðir gullmolar byrjuðu að koma í heiminn undir kvöldmat fimmtudaginn 2. febrúar 2012, 4 rakkar og 4 tíkur, undan Reese (ISCH ISVetCH RW-14 Thornapple Seduction) og Þengli (Heimsenda Ösku Illur). Þau fengu öll alveg yndisleg heimili þar sem þau voru dekruð út í eitt og hafa upplifað endalaus ævintýri með sínu besta fólki. Þau eru því miður ekki öll með okkur í dag en elsku Kobbi, Johnny og Salma til hamingju með daginn ykkar og eigið góðan dag með ykkar besta fólki. Við kveikjum á kerti fyrir Æsu, Fróða, Zetu, Marley og Angöru sem munu án efa eiga góðan dag í draumalandinu með foreldrum ykkar, yngri systkinum og frændsystkinum. Kossar og knús á ykkur öll 😘❤️🐾 ------------- Today we have 10 years since our first bred litter was born, The Star litter. 8 healthy gems started to come into the world just before dinner on Thursday February 2nd 2012, 4 males and 4 females, after Reese (ISCH ISVetCH RW-14 Thornapple Seduction) and Þengill (Heimsenda Ösku Illur). They all got great homes where they have been spoiled every day and every day has been a new adventure with their families. Sadly the Stars are not all with us any more but our dearest Kobbi, Johnny and Salma happy birthday to all of you and we hope you will all have a great day with your families like always. We will light a candle for Fróði, Zeta, Marley, Angara, and Æsa that will for sure have a great day together with your parents, your younger siblings and cousins on the other side. Hugs and kisses to all of you 😘❤️🐾 Þegar við kveðjum árið 2021 er við hæfi að fara yfir hvað árið hafði í för með sér. Þrátt fyrir miklar takmarkanir gerðist margt skemmtilegt hjá okkur á árinu sem er að líða og við náðum að eiga margar gæðastundir með ferfætlingunum okkar, vinum og ættingjum. Það var mikið hvolpafjör hjá okkur á árinu sem hófst í lok febrúar þegar Sofie og Fayro eignuðust 6 yndislega hvolpa í Gimsteinagotinu, 4 tíkur og 2 rakka. Sofie stóð sig eins og hetja í uppeldinu og var virkilega gaman að fylgjast með henni ala þau upp og þau þroskast sem einstaklingar dag frá degi. Þau fengu öll yndisleg heimili þar sem þau eru elskuð til tunglsins og til baka. Súkkulaðigotið undan Kviku og Fayro fæddist svo í byrjun júní, 2 tíkur og 1 rakki. Því miður var fjórði hvolpurinn andvana tík sem ekkert var hægt að gera fyrir og var það í fyrsta sinn sem við höfum orðið fyrir því óláni að missa hvolp. Hin þrjú voru öll heilbrigð og mjög hraust og döfnuðu vel. Kvika stóð sig eins og herforingi í móðurhlutverkinu eins og hún á ættir til. Eins og Gimsteinarnir fengu þau öll dásamleg heimili þar sem þau eru elskuð út í eitt. Sýningahald var takmarkað á árinu en náðist þó að halda nokkrar sýningar á árinu og stóðu okkar fulltrúar sig ljómandi vel þar eins og alltaf og erum við óendanlega stolt af þeim öllum og þeirra árangri í hringnum á árinu. Jafnframt erum við þakklát eigendum þeirra fyrir að nenna að standa í þessu sýningarstússi með okkur því án þeirra væri þetta ekki hægt. Izzy sneri aftur í hringinn í ungum sýnendum í haust með Melkorku systir hennar Ylfu og tóku þær þátt í flokki yngri sýnenda við mjög góðan árangur. Það er yndislegt að horfa á þær saman í hringnum því þær skemmta sér svo vel saman og eru miklar vinkonur. Á næsta ári er Melkorka komin í eldri flokk ungra sýnenda og verður gaman að fylgjast með þeim vinkonum takast á við það verkefni saman. Aðrir Víkurhundar stóðu sig vel í hinum ýmsu verkefnum á árinu. Sumarið í ár einkenndist af ferðalögum innanlands hjá mörgum eins og síðasta sumar. Einhverjir fluttu á ný heimili með fjölskyldum sínum en þau áttu fyrst og fremst góðar stundir með sínu allra besta fólki og voru eigendum sínum tryggir og traustir félagar. Við erum þakklát fyrir alla einstöku gullmolana sem hafa fæðst okkur í gegnum árin eða komið inn í líf okkar með öðrum hætti. Við erum jafnframt þakklát fyrir öll þau frábæru heimili sem þau búa á hjá eigendum sem sjá ekki sólina fyrir þeim, fyrir trausta og góða ræktendur erlendis sem við getum alltaf leitað til og síðast en ekki síst fyrir þann frábæra hóp af sýnendum sem eru í þessu með okkur og eru svo miklu meira en sýnendurnir okkar því þær eru einnig traustir vinir okkar, því án allra ykkar væri þetta alls ekki hægt og hvað þá svona skemmtilegt. Takk öll fyrir árið og við hlökkum til nýs árs með ykkur öllum. Um síðustu helgi fór fram Winter Wonderland sýning HRFÍ. Metskráning var á sýninguna og jafnframt innan tegundar. Við áttum okkar fulltrúa þar sem stóðu sig öll með sóma, fengu fallegar umsagnir frá dómara tegundar og erum við ákaflega stolt af fallegum fulltrúum tegundar.
Ungviðaflokkur:
Ungliðaflokkur:
Öldungaflokkur:
Víkurræktun fór með ræktunarhóp sem samanstóð af Heklu, Stormi og Sunnu og hlutu þau heiðursverðlaun. Izzy tók þátt í keppni í yngri flokki ungra sýnenda með Melkorku vinkonu sinni og geisluðu þær saman í hringnum og skilaði það þeim 1 sæti í feikna sterkri keppni en um 20 keppendur voru skráðir til leiks. Þetta er síðasta ár Melkorku í yngri flokki og verður gaman að fylgjast með þeim spreyta sig í eldri flokki á næsta ári. Gimsteinarnir urðu 9 mánaða daginn fyrir sýningu og tóku því þátt í ungliðaflokki í fyrsta sinn og var gaman að sjá þau spreyta sig á móti mun eldri einstaklingum og standa sig með sóma og ekki hægt að segja annað en að framtíðin sé björt hjá þeim. Sýningin gekk í alla staði vel og á sýningarstjórn og þeir er komu að sýninginni skilið hrós fyrir frábært starf. Erum ákaflega stolt af glæsilegum árangri hjá öllum gullmolunum og erum eigendum þeirra ákaflega þakklát fyrir að nenna að stússast í þessu með okkur. Elsku Gauja, Thelma Dögg, Theodóra og Bergdís takk fyrir alla hjálpina þessum glæsilega árangri væri ekki náð án ykkar aðkomu að þessu. Á Sýningu Fjár- og hjarðhundadeildar um síðustu helgi hlaut Izzy þriðja og síðasta öldungameistarastigið sitt en fyrri stigin tvö hafði hún fengið á tvöföldu sýningunni í ágúst s.l. Þar með hefur hún hlotið titilinn íslenskur öldungameistari og fetar þar með í fótspor foreldra sinna sem voru fyrstu áströlsku fjárhundarnir hér á landi til að öðlast þennan titil. Hún er jafnframt fyrsti hundurinn ræktaður af okkur sem hlýtur þennan titil. Hún bætir því ISVetCH í titlasafnið og ber því ræktunarnafnið C.I.B. ISVetCH ISCH NLM RW-18 RW-21 Víkur American Beauty. Takk elsku Gauja og Theodóra fyrir að sýna prinsessuna okkar alltaf svona vel og fyrir að ná þessum frábæra árangri með hana. -------------- At the Herding Club Show last weekend Izzy earned herself her last veteran CC and is therefor a new Icelandic Veteran Champion, ISVetCH. She follows in her parents footsteps by gaining this title and is our first bred veteran champion. She has been a really successful show dog and can now call herself C.I.B. ISVetCH ISCH NLM RW-18 RW-21 Víkur American Beauty. Big thanks to our dearest Gauja and Theodóra that have shown her for us since puppy classes. |
Archives
April 2024
|