Í dag var seinni dagur á tvöfaldri sýningarhelgi hjá HRFÍ og var alþjóðleg sýning í dag. Við áttum að sjálfsögðu okkar fulltrúa þar eins og í gær og stóðu þau sig öll mjög vel og voru okkur ræktendum og tegundinni til sóma.
Gimsteinarnir fæddir 26.02.2021:
Draumabörnin fædd 20.04.2019:
Kvikmyndagotið fætt 05.09.2012:
Víkurræktun fór með ræktunarhóp sem samanstóð af Izzy, Stormi og Heklu og varð hann BESTI RÆKTUNARHÓPUR TEGUNDAR með heiðursverðlaun. Þessum frábæra árangri væri að sjálfsögðu ekki náð nema með aðstoð góðra vina og aðstoð frá eigendum hundanna. Við erum endalaust þakklát fyrir okkar frábæru sýnendur þær Gauju og Ylfu sem báru höfuð og herðar af árangri helgarinnar og hefði þetta aldrei náðst nema fyrir tilstilli þeirra þar sem við sjálf gátum ekki verið með um helgina. Við óskum þeim og eigendum hundanna innilega til hamingju með frábæra helgi ásamt því að þakka þeim öllum og Thelmu fyrir alla hjálpina um helgina. Þið eruð best <3
1 Comment
Fyrsta hundasýning ársins fór fram í dag. Til að hægt væri að fara eftir öllum sóttvarnarlögum fór sýningin fram á tveimur sýningarsvæðum, Víðistaðatúni í Hafnarfirði og Víðidal í Reykjavík og var Aussie sýndur á Víðistaðatúni. Við áttum 7 fulltrúa í tegundinni og ekki hægt að segja annað en þau hafi öll staðið sig frábærlega og verið ræktuninni okkar og tegund til sóma.
Fjórir hvolpar úr Gimsteinagotinu tóku þátt í sýningunni og stóðu þau sig öll ljómandi vel. Sýndu sig öll mjög fallega, fengu öll sérlega lofandi í einkunn og mjög fallegar umsagnir. Besta ungviði tegundar var hún Sunna (Víkur Black Pearl) sýnd af eiganda sýnum Andreu Björk Hannesdóttur.
Tvö Draumabörn tóku jafnfram þátt í sýningunni og stóðu þau sig stórvel og fengu þau bæði mjög fallegar umsagnir og excellent í einkunn.
Kvikmyndagotið átti líka sinn fulltrúa og ekki annað hægt að segja en hún hafi staðið sig ljómandi vel í fyrsta sinn í öldungaflokki rétt tæplega 9 ára gömul.
Víkurræktun fór með ræktunarhóp sem samanstóð af Izzy, Heklu og Stormi og varð hann BESTI RÆKTUNARHÓPUR TEGUNDAR með heiðursverðlaun. Við erum endalaust þakklát fyrir okkar frábæru sýnendur þær Gauju og Ylfu sem báru höfuð og herðar af árangri dagsins og hefði þetta aldrei náðst nema fyrir tilstilli þeirra þar sem við sjálf gátum ekki verið með í dag. Við óskum þeim og eigendum hundanna innilega til hamingju með frábæran dag og hlökkum til að knúsa þau öll fast í tilefni dagsins. Fyrstu súkkulaðibörnin fóru að heiman á fimmtudaginn þegar þau urðu 9 vikna gömul og eru alltaf blendnar tilfinngar sem þjóta um hugann á þeim tímapunkti. Þessi brottfarardagsetning var samt vel við hæfi því þann dag var akkúrat liðið ár frá því pabbi þeirra kom út úr einangrun og hingað heim.
Það voru þau Víkur Chocolate Creme Brulée "Yrja" og Víkur Chocolate Velvet "Varmi" sem fóru fyrst af bæ. Í dag fór svo Víkur Dark Chocolate "Perla" til nýrra eigenda. Við erum þakklát fyrir 9 dásamlegar vikur með þessum gullmolum, þakklát fyrir þau frábæru heimili sem opnuðu arma sína fyrir þeim og síðast en ekki síst þakklát Marko Ljutic fyrir að treysta okkur fyrir þessum einstaka gullmola sem pabbi þeirra er. Við óskum nýjum eigendum innilega til hamingju með gullmolana sína og bjóðum þau jafnframt velkomin í Víkurfjölskylduna. |
Archives
May 2024
|