Í dag fagna Izzy og systkini hennar í Kvikmyndagotinu 8 ára afmælinu sínu sem þýðir að þau eru orðin löglegir öldungar líkt og Stjörnugotið. Kvikmyndagotið er annað gotið fætt okkur og voru þau alls 11, 6 rakkar og 5 tíkur. Foreldrar þeirra voru fallegu englarnir okkar þau Reese og Chase. Þau fengu öll alveg yndisleg heimili þar sem þau eru hafa verið dekruð út í eitt og upplifað endalaus ævintýri með sínu fólki. Því miður fækkaði um fjóra gullmola í systkinahópnum síðasta árið en þeir Smali, Týr, Smári og Ronaldo fóru allir yfir í draumalandið til Rófu og Jöklu og er mikill söknuður að þeim öllum. Elsku Bósi, Doddi, Gríma, Píla og Izzy til hamingju með daginn ykkar og eigið góðan dag með ykkar besta fólki. Við kveikjum á kerti fyrir systkini ykkar, mömmu og pabba sem munu án efa eiga góðan dag í draumalandinu með eldri systkinum ykkar og frændsystkinum. Kossar og knús á ykkur öll 😘❤️🐾
1 Comment
|
Archives
May 2024
|