Trúi því varla að það sé komið eitt ár síðan Gimsteinarnir komu í heiminn. Fæðing þeirra gekk eins og í sögu og innan við 3 tímum eftir að fyrsti hvolpurinn kom í heiminn voru þau orðin sex, fjórar tíkur og tveir rakkar. Sofie stóð sig frábærlega í uppeldinu og var eins og hún hefði aldrei gert annað. Fayro stóð eins og stytta við hliðina á henni og veitti henni andlegan stuðning af hliðarlínunni á meðan hún sá um börnin. Þau fengu öll frábær heimili þar sem þau eru elskuð til tunglsins og til baka. Elsku Lúna, Viggó, Manni, Sunna og Katla til hamingju með daginn ykkar og ég veit að þið fáið eitthvað gott að borða í tilefni dagsins. Karma systir ykkar, mamma ykkar, pabbi ykkar og við hin sendum ykkur öllum risa knús í tilefni dagsins.
0 Comments
Leave a Reply. |
Archives
May 2024
|