Nú um helgina fór fyrsta sýning ársins fram. Það var fámennur en góðmennur hópur sem fór frá okkur á sýninguna. Við mættum með þær mæðgur Izzy og Blue og gekk þeim ljómandi vel.
Eftir sýninguna á sunnudaginn fórum við með mæðgurnar í smá myndatöku hjá Önnu Szabó frá Ungverjalandi og erum við mjög spennt að sjá útkomuna úr því seinna í vikunni. En við fengum að taka myndirnar í hesthúsinu hjá góðum vinum okkar þeim Eddu Rún og Sigga Matt sem reka Ganghesta, alhliða hestamiðstöð ásamt Reiðskóla Reykjavíkur. Það bættist að vísu einn laumufarþegi inn á sumar myndirnar en það er hryssa úr okkar ræktun, Þórdís frá Árbæ. Erum endalaust þakklát fyrir þann breiða og glæsilega hóp sýnenda sem eru í þessu með okkur. Theodóra var komin alla leið frá Þýskalandi til að vera með okkur og sýndi þær mæðgur í dóm. Theodóra hljóp síðan með Izzy inn í úrslit og hún Ylfa okkar tók Blue. Síðan voru Gauja og Thelma með mér á hliðarlínunni. Kærar þakkir fá Petmark umboðsaðili Eukanuba á Íslandi og 4 loppur umboðsaðili Chris Christensen á Íslandi fyrir þeirra stuðning. Takk öll þið hin fyrir dyggan stuðning við okkur í gegnum tíðina <3 Last weekend we had the first show of the year here in Iceland. We only had two representatives from our breeding but they both did really good. We took Izzy and her daughter Blue.
After the show on Sunday we took mother and daughter to a photo shoot with Anna Szabó from Hungary and we can't wait to see the photos later this week. We got to take the pictures in our dear friends, Edda Rún and Siggi Matt, stable but they run Ganghestar a horse center and the riding school, Reiðskóli Reykjavíkur, during the summer time. There was one more addition of our breeding that took part in the photo shoot but a mare bred by us, Þórdís frá Árbæ, that is in training by Siggi and Edda sneaked into some photos. Huge thanks to our Theodóra that came all the way from Germany to be with us and showed both mother and daughter and to Ylfa that took Blue into the finals and to our Gauja and Thelma that were on the sideline with me. Big thanks to Petmark, Iceland's distributor for Eukanuba, 4 loppur, Iceland's distributor for Chris Christensen, and to all of you thank you for your support <3
0 Comments
Leave a Reply. |
Archives
May 2024
|