Um síðustu helgi var seinni tvöfalda sýning ársins hjá HRFÍ en eins og í júní var Norðurlanda sýning á laugardeginum og alþjóðleg sýning á sunnudeginum. Við tókum þá ákvörðun að skrá lítið á sýninguna og skráðum eingöngu 2 tíkur frá okkur og svo kom 1 rakki að auki ræktaður af okkur. Í það heila voru um 25 hundar skráðir hvorn dag. Á laugardeginum dæmdi Jörgen Hindse, Danmörku, tegundina og gekk okkar hundum vel.
Á alþjóðlegu sýningunni á sunnudeginum var það Maija Lehtonen frá Finnlandi sem dæmdi bæði tegundina og tegundahóp. Izzy ákvað að það væri ekki gaman að fara heim á hádegi tvo daga í röð og datt í gírinn og heillaði dómarann með ást sinni á sýningarhringnum og vinnusemi fyrir sýnandann en hún veit ekkert skemmtilegra en að fá að vinna sama hvort það er í hringnum eða fyrir utan hann. Hún gerði sér lítið fyrir og varð besti hundur tegundar og lét sér það ekki nægja heldur sveif áreynslulaust um stóra hringinn og hafnaði í 2 sæti í tegundahópi 1. Frábær dagur hjá lillunni okkar sem er svo gott sem feldlaus þessa dagana 😂❤️
Takk elsku Gauja og Ylfa fyrir að sýna steplurnar okkar alltaf svona vel, takk elsku Sóley fyrir að gera skvísurnar svona glæsilegar og takk þið hin sem áttuð þátt í að gera helgina eftirminnilega ❤️🐾❤️ Last weekend we had a double show here in Iceland. We had only 2 females entered and 1 dog from our breeding but there were about 25 Aussie’s registered each day.
On Saturday we had Nordic Champion Show, Aussie judge was Jörgen Hindse, Denmark.
On Sunday we had Inernational Show with Maija Lehtonen from Finland judging breed and group. Izzy decided that it was her day to charm the judge with her endless love of the showring and her effordless work with Gauja. She ended up as best female and then took Best of Breed and that was not enough for her as she became Best in Group 2. What a day for our precious girl that says coat is over estimated and not needed on a show dog 😂❤️
1 Comment
4/4/2023 14:31:27
I wanted to express my gratitude for your insightful and engaging article. Your writing is clear and easy to follow, and I appreciated the way you presented your ideas in a thoughtful and organized manner. Your analysis was both thought-provoking and well-researched, and I enjoyed the real-life examples you used to illustrate your points. Your article has provided me with a fresh perspective on the subject matter and has inspired me to think more deeply about this topic.
Reply
Leave a Reply. |
|