Dagana 8. – 12. nóvember fer Heimssýningin í ár fram í Leipzing í Þýskalandi. Víkur ræktun mun eiga sinn fulltrúa þar en Saarland Sieger 2017 CIB ISCH Víkur Bob Marley „Marley“ er skráður í meistaraflokk. Marley hefur búið í Þýskalandi með Theodóru, meðeiganda okkar, síðan um miðjan apríl en þá flutti hún út til að hefja nám í dýrahjúkrun. Seinni part sumars tókum við þá ákvörðun að skrá hann til leiks á heimssýningunni, enda í topp formi drengurinn. Okkur telst svo til að hann sé fyrsti ástralski fjárhundurinn ræktaður á Íslandi til að taka þátt í heimssýningu og erum við óendanlega stolt af því þar sem við erum ung ræktun í tegundinni. En hann er fæddur í okkar fyrsta goti sem varð 5 ára í febrúar. Hann var fyrsti hundurinn ræktaður af okkur til að verða alþjóðlegur meistari, CIB, en hann er jafnframt fyrsti rakkinn ræktaður á Íslandi til að fagna þeim titli. En eingöngu þrír ástralskir fjárhundar ræktaðir á Íslandi hafa náð því að verða alþjóðlegir meistarar og getum við sagt með stolti að við ræktuðum tvö þeirra Marley og hálf systir hans Izzy „CIB ISCH NLM Víkur American Beauty“ og erum við ákaflega stolt af þeim árangri með ekki eldri ræktun en þetta. Marley hefur eingöngu tekið þátt í tveimur sýningum í Þýskalandi síðan þau flutti út og varð hann besti rakki tegundar og BOS á annarri þeirra og hlaut titilinn Saarland Sieger 2017. Við erum ákaflega stolt af honum og hans árangri í gegnum árin en hann átti góðu gengi að fagna á sýningum hér á landi áður en hann flutti út. Aussie verður sýndur laugardaginn 11. og eru rúmlega 140 hundar skráðir til leiks. Við erum farin að telja niður dagana þar til prinsinn og Theodóra fara í hringinn 😊 The World Dog Show 2017 this year will be in Leipzig, Germany, November 8th – 12th. We will have our very own representative there in champion class, Saarland Sieger 2017 CIB ISCH Víkur Bob Marley „Marley“. Marley has been living with Theodóra, our co-owner, in Germany since the middle of April when she moved there to study animal care. At the end of this summer whe decided to register him at the WDS, as he is in great show condition. As we know best he is the first Australian Shepherd bred in Iceland to take part at the WDS and we are infinitely proud of this because we are a young breeding. He is from our first litter that became 5 years old last February. He was the first dog bred by us to become International Champion, CIB, and he is also the first and only male of his breed bred in Iceland to become CIB. Only three Aussies bred in Iceland have gained that title and we can proudly say that we bred two of them, Marley and his half sister Izzy „CIB ISCH NLM Víkur American Beauty“ and we are extremely proud of the results with not older breeding than we are. Marley has only taken part in two shows in Germany since they moved and he became best male of breed and BOS on one af them and gained himself the title Sarlaand Sieger 2017. We are extremely proud of him and his show results over the years but he had had a great show carreer here in Iceland before he moved. Aussie will be in the ring on Saturday the 11th with just over 140 registerd dogs and we are counting the days until we see our precious boy and Theodóra in the ring 😊
0 Comments
Leave a Reply. |
Archives
May 2024
|