Þessi mikli snillingur fagnar 10 ára afmælinu sínu í dag, 15. janúar, sem segir okkur það að við höfum verið þess heiðurs aðnjótandi að hafa hann í okkar lífi í tæp 6 ár. Það er ekki hægt að segja annað en að hann hafi verið hvers manns hugljúfi frá því hann kom til landsins og betri vin og félaga er ekki hægt að hugsa sér. Hann er bangsasjúkur og er ómögulegur þegar hann fer að sofa á kvöldin ef hann hefur ekki nokkra bangsa að kúra í. Matur er eitthvað sem hann elskar líka og góður hrossakjötsbiti er í miklu uppáhaldi hjá honum. Betri fyrirmynd er ekki hægt að fá sama hvort um ræðir börnin hans, afabörn eða hina hundana á heimilinu, hann tekur öllu af stóískri ró og er lítið fyrir að æsa sig útaf hlutunum. Hann er barngóður með eindæmum og er uppáhald mjög margra frændsystkina. Hann er alltaf til í að kúra á gólfinu með vini eða vinkonu og í skiptum fyrir gott klór eða jafnvel smá nammibita. Hann verður dekraður í dag sem og aðra daga og verður gott sófakúr og góður kjötbiti á dagskránni hjá okkur í kvöld. Til hamingju með daginn elsku besti Chase okkar, elskum þig endalaust og takk Ellen og Amy fyrir að senda þennan einstaka gullmola til okkar <3 -------------- Today we celebrate the 10th birthday of the king of the house which means that he has been with us for almost 6 years. He has been our best friend and partner since the day he arrived at our home. He loves his teddy bears and can't go to sleep in the evening without few of them. Good food is for sure his cup of tea and a a good piece of meat is something he never says no to. He is the best role model for his kids, grandchildren and the other dogs at our house. He takes everything with a lot of tranquility and does not let things bother him. He is great with children and is every child's favorite. He is always willing to cuddle in the sofa or at the floor with a dear friend. He will be treated today as the king he is as every day. Good peace of meat and a lot of cuddling on the sofa will be on our schedule today. Happy Birthday our precious Chase, we love you to the moon and back and thank you Ellen and Amy for trusting us with this precious boy of ours <3
0 Comments
Leave a Reply. |
Archives
May 2024
|