Í dag fagna Izzy og systkini hennar úr Kvikmyndagotinu 10 ára afmælinu sínu. Kvikmyndagotið er annað gotið fætt okkur og voru þau alls 11, 6 rakkar og 5 tíkur. Foreldrar þeirra voru fallegu englarnir okkar þau Reese og Chase.
Þau fengu öll alveg yndisleg heimili þar sem þau hafa upplifað endalaus ævintýri með sínu besta fólki og að sjálfsögðu fengið nóg dekur. Nokkur þeirra hafa yfirgefið okkur og hlaupa nú um í draumalandinu með foreldrum þeirra. Izzy nýtur þess í botn að vera öldungurinn á heimilinu þó hún sé langt frá því að vera farin að sýna ellimerki. Gott sófakúr er í miklu uppáhaldi hjá henni ásamt allri útiveru og fær hún seint leið á því að hlaupa á eftir dóti út í vatn þó að henni finnist mjög leiðinlegt að fara í bað. Sýningarhringurinn er líka í miklu uppáhaldi hjá henni og hefur hún staðið sig frábærlega þar síðasta árið sem og árin á undan en hún stefnir að því að leggja tauminn á hilluna eftir þetta ár. Elsku Doddi, Gríma, Píla og Izzy til hamingju með daginn ykkar og eigið góðan dag með ykkar besta fólki. Við kveikjum á kerti fyrir systkini ykkar, mömmu og pabba sem munu án efa eiga góðan dag í draumalandinu með eldri systkinum ykkar og frændsystkinum. Kossar og knús á ykkur öll 😘❤️🐾
0 Comments
Leave a Reply. |
|