![]() Það var mikill sorgardagur á heimilinu í gær en þá fór kóngurinn okkar á vit forfeðra sinna, Reese og þeirra afkomenda þeirra er hafa kvatt alltof fljótt. Hann hefur gefið okkur og svo mörgum öðrum svo margt og mun hann alltaf eiga sérstakan sess í hjarta okkar því það er einfaldlega enginn eins og hann ❤️ Chase var 12 ára gamall síðan í janúar en hann kom til okkar frá Bandaríkjunum í febrúar 2012 og úr einangrun í byrjun mars sama ár. Á þeim tíma vorum við með okkar fyrsta got 4 vikna gamalt. Hann kom sultuslakur til okkar á flugvellinum, lallaði sér inn heima, lagðist þar á gólfið eftir að hafa skoðað sig um í smástund og varð klifurgrind hvolpanna á sömu stundu. Það er ekki sjálfgefið að það gangi svona vel að koma með rakka inn á nýtt heimili og hvað þá þar sem fyrir er tík með unga hvolpa en nei, hann lét það ekki á sig fá og var ótrúlegt að sjá hvað hann leyfði hvolpunum að hnoðast á sér og búa öll gotin hjá okkur að því að hafa fengið að umgangast þennan mikla höfðingja. Chase var einstaklega farsæll sýningarhundur og var bandarískur meistari þegar hann kom til landsins. Eftir komu sína til Íslands varð hann íslenskur meistari, íslenskur öldungameistari og alþjóðlegur meistari ásamt því að hljóta nafnbótina Reykjavík Winner 2017. Hann varð stigahæsti hundur tegundar 2016 og stigahæsti öldungur Fjár- og hjarðhundadeildar 2017. Hann varð margoft besti hundur tegundar og besti öldungur tegundar. Hann ávann sér tvisvar þátttökurétt á Crufts, stærstu hundasýningu í heimi. Hans besti árangur í tegundahópi 1 var fyrsta sæti. Hann varð 2 sinnum besti öldungur sýningar og hafnaði auk þess nokkrum sinnum í sæti í keppni um besta öldung sýningar. Chase var frábær fyrirmynd fyrir hina hundana á heimilinu og þá hunda sem umgengust hann. Hann var góður pabbi, stjúppabbi, afi, skáafi, frændi en fyrst og fremst góður félagi. Hann átti got í Bandaríkjunum áður en hann kom hingað en átti einungis eitt got hér á Íslandi. En undan honum og Reese fæddust 11 hvolpar og hafa þau sem þegar hafa kvatt okkur eflaust orðið glöð að endurheimta pabba sinn. Tvö afkvæma hans hér á Íslandi afrekuðu það eins og pabbi sinn að verða stigahæstu hundar tegundar, þau CIB ISCH Víkur Harry Potter HIT "Smári" 2017 og CIB ISCH NLM RW-18 Víkur American Beauty "Izzy" 2018 en þau systkinin urðu bæði íslenskir og alþjóðlegir meistarar. Smári er því miður fallinn frá en Izzy býr hér heima með okkur. Afkvæmi hans úr gotinu í Bandaríkjunum dreifðust um allan heim og hafa mörg hver og afkomendur þeirra staðið sig vel í sýningarhringnum. Það er ekki hægt að hugsa aftur til baka öll árin sem við áttum með honum án þess að einstök ást hans á böngsum komi upp í hugann. Hann var gjarn á að tína saman alla bangsa sem hann fann og hrúga þeim í kringum sig áður en hann fór að sofa á kvöldin. Hann var ekki matsár en hann var einstaklega bangsasár og þótti honum ekkert verra en ef einhver stal uppáhalds bangsanum frá honum og sendi hann okkur þá bænarsvip og ætlaði okkur að hjálpa sér að endurheimta bangsann sinn því ekki datt honum til hugar að slást um hann. Ef við vorum ekki til staðar til að ná þeim til baka fyrir hann sat hann rólegur á kantinum og beið eftir að bangsaþjófurinn liti undan til að geta tekið hann til baka. Hann átti þessa bangsaástríðu alveg fram á síðasta dag en bangsinn sem lítil vinkona gaf honum tveimur dögum fyrir fráfall hans fylgdi honum hvert sem hann fór þennan stutta tíma. Chase var fyrst og fremst einstaklega góður félagi sem bræddi öll hjörtu og munum við alltaf minnast þess höfðingja og ljúflings sem hann var. Chase átti sér ófáa aðdáendur stóra sem smáa og jafnt menn sem dýr. Hann hafði einstaklega góða nærveru og féllu öll börn fyrir honum og elskuðu að kúra með honum annað hvort upp í sófa eða á gólfinu. Takk elsku Ellen og Amy fyrir að treysta okkur fyrir þessum einstaka ljúfling og takk elsku besti Chase okkar fyrir öll árin okkar saman þó þau hefðu gjarnan mátt vera enn fleiri. Við elskum þig endalaust og munum aldrei gleyma þér. Hvíldu í friði elsku vinur og knúsaðu Reese og öll hin frá okkur ❤️
0 Comments
Leave a Reply. |
|