Það er ekki hægt að segja annað en að við séum að rifna úr stolti hérna heima á Íslandi yfir frábærri byrjun á sýningum erlendis hjá Marley og Theodóru. En þau tóku þátt í sinni fyrstu sýningu í Neuenkirchen, Þýskalandi, í morgun. Marley var skráður til leiks í meistaraflokki sem hann sigraði og með því hlaut hann sitt fyrsta þýska meistarastig, CAC, en 5 slík þarf til að verða þýskur meistari, VDH CH. Í keppni um besta rakkann gerði hann sér lítið fyrir og sigraði hina rakkana, hlaut CACIB og titilinn Saarlandsieger 2017. Í keppni um besta hund tegundar varð hann BOS. 26 ástralskir fjárhundar voru skráðir á sýninguna og dómari tegundar var Christofer Habig, Þýskalandi. Hlaut hann mjög fallega umsögn frá dómaranum og gaman að heyra hversu góðar móttökur hann fékk hjá öðrum sýnendum. Enn og aftur til hamingju með gullmolann okkar elsku Theodóra okkar, við sendum risa knús yfir hafið til ykkar Marley og erum endalaust þakklát fyrir að fá að taka þátt í þessu ævintýri ykkar saman. Elskum ykkur <3 Words can't describe how proud we are of Marley and Theodóra. They took part in their first show abroad this morning. The show was held in Neuenkirchen, Germany, 26 Australian Shepherds took part in the show and the judge was Christofer Habig, Germany. Marley was registered in champion class which he won and got his first German CAC, but he needs 5 CAC to become VDH CH, German Champion. Then he did even better and became best male of breed,got CACIB, became BOS and earned himself a new title, Saarlandsieger 2017. We are thankful to the judge for his beautiful critique and to all the people at the show that spoke so highly of him. Our dearest Theodóra and Marley, we send you huge congrats and a lot of kisses over the ocean. We are so proud of you and thankful to be able to take part in your adventures overseas. We love you <3
1 Comment
|
Archives
May 2024
|