Elsku Reese okkar er því miður farin í regnbogalandið en við erum ákaflega þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með henni. Við áttum rúmlega 8 góð ár með henni, eigum endalaust af fallegum minningum um hana og eru þær minningar vel geymdar. Hvíldu í friði elsku drottningin okkar ❤️🐾❤️
Reese kom til landsins í febrúar 2011 frá Bandaríkjunum. Hún hafði tekið þátt í nokkrum sýningum áður en hún kom til landsins og má sjá myndir frá þeim og uppvaxtarárum hennar hér.
Reese aðlagaðist vel á Íslandi og varð fljótt hugur allra. Hún tók þátt í sinni fyrstu sýningu í júní 2011 og gekk það ljómandi vel. Vann tíkurnar í sínum aldursflokki og var önnur besta tíkin í Aussie. Jafnframt hlaut hún Íslandsmeistarastig og CACIB.
Árið 2012 var hvolpaár hjá Reese en við tókum tvö got undan henni og komu samtals 19 hvolpar í heiminn. Því var hún ekkert í sýningarhringnum það árið en mætti aftur í hringinn haustið 2013. Reese fékk sitt þriðja íslenska meistarastig á febrúarsýningunni 2014 og varð þá íslenskur meistari. Hún varð 8 ára í ágúst 2015 og ákváðum við því að skrá hana í öldungaflokk á septembersýningunni og stóð hún sig einstaklega vel þar er hún varð önnur besta tík tegundar á eftir dóttur sinni, varð besti öldungur tegundar og var valin í top 6 í úrslitum um besta öldung sýningar. Reese er búin að leggja sýningarskóna á hilluna en hún átti afar farsælan sýningarárangur hér á Íslandi. Hún tók þátt í samtals 21 sýningu og á 18 þeirra lenti hún í sæti í keppni um bestu tík tegundar og varð besta tík tegundar í 5 skipti og þar af besti hundur tegundar 3 og besti hundur af gagnstæðu kyni 2. Í þau 5 skipti sem hún tók þátt í öldungaflokki varð hún besti öldungur tegundar 4 sinnum og 1 sinni besti öldungur tegundar af gagnstæðu kyni. Hún hafnaði einu sinni í 3 sæti í keppni um besta öldung sýningar, 2 sinnum í 4 sæti og 1 sinni í 5-6 sæti. Við fórum nokkrum sinnum með afkvæmahóp undan henni og urðu þau alltaf besti afkvæmahópur tegundar og 1 sinni 3 besti afkvæmahópur sýningar og 1 sinni 4 besti afkvæmahópur sýningar. Ekki annað hægt að segja en hún hafi átt alveg hreint frábæran sýningarárangur eins og sést hér að neðan.
STIGAHÆSTI HUNDUR TEGUNDAR 2014
STIGAHÆSTI ÖLDUNGUR FJÁR- OG HJARÐHUNDADEILDAR 2016
Faðir : CH Thornapple Rodhouse Red, Red merle FF: AKC Ch Thornapple Aftershock "Diablo", Red merle FM: Thornapple Lizzie McGuire DOB, Black tri Móðir : CH Thornappel Promiscuous "Monet", Black tri MF: AKC CH Thornapple Red Hot Outlaw, Red tri MM: Cork-Kerry´s Sweet Vidalia Fædd: 10.08.2007 - 28.08.2019 Ættbókanr: IS15812/11 (innflutt/USA) Eigendur: Ólafur Örn Ólafsson og Maríanna Gunnarsdóttir Ræktendur: Ellen S Brandenburg, Coleen Zartman og Amy Garrison Augnskoðun: 17.11.2013 HD: A1 AD: Normal PRA: DNA test - Clear CEA: DNA test - Clear HSF4: DNA test - Clear MDR1: +/+ DNA tested clear Litur: Bláyrjótt/blue merle, NBT, red factored Besti árangur ræktunardómur: EXL.1,M.STIG 1.BT. BOB,CACIB, BIG2, BIS3 afkvæmahópur