Boss er því miður fallinn frá en við áttum hann með Guðnýju Isaksen og bjó hann hjá henni og fjölskyldu hennar í Hafnarfirði. Það er mikill missir að honum en hann veiktist skyndilega og kvaddi okkur alltaf fljótt. Hann og Guðný áttu einstakt samband og hefði hann ekki getað búið á betri stað en hjá "kærustu" sinni <3
Boss var fæddur í Chile í mars 2013. Hann kom hann til Íslands með stuttri millilendingu í Þýskalandi í desember 2013 og kom hann út úr einangrun í janúar 2014. En hann átti langt ferðalag að baki þar sem hann er fæddur í Santiago, Chile og kemur frá Bleuroyal Kennel sem er statt þar.
Boss var einstakur ljúflingur og gekk vel hjá honum að aðlagast nýjum aðstæðum og kynnast stór fjölskyldunni sinni hér á Íslandi.
Hann tók þátt í nokkrum sýningum hér á Íslandi. Bestum árangri náði hann sumarið 2015 þegar hann vann vann opna flokkinn, varð besti rakki tegundar, BOB, sigraði tegunda hóp (BIG1) og varð annar besti hundur sýningar (BIS2) með sitt annað meistarastig og sitt fyrsta CACIB. Hann varð íslenskur meistari 2018.
Það er til eitt got undan honum en hjá Heimsljósaræktun fæddust 6 gullmolar undan honum í febrúar 2019 og verður gaman að sjá þau þroskast og dafna og halda nafni pabba síns á lofti.
STIGAHÆSTI HUNDUR TEGUNDAR 2015
Faðir: CH/JCH Bleuroyal Unanimous Decision "Kodiak" FF: AKC/ASCA Ch. Thornapple Code Red "LaDew" FM: Ch. Thornapple Peachy Keen "GiGi" Móðir: GCH/CH/JCH Bleuroyal Dirty Sexy Money "Mimi" MF: BIS GCH Ch. Thornapple I Call The Shots "Icon" MM: GCH Multi Ch. Thornapple Talkin´Smack "Dreamy" Fæddur: 21.03.2013 Ættbókanúmer: IS19345/14 Eigendur: Maríanna Gunnarsdóttir og Guðný Isaksen Ræktendur: Alejandra Reyes og Gaspar Toro Gellona (Santiago, Chile) - BleuRoyal Augnskoðun: 02.03.2018 HD: A2 PRA: DNA test - Clear CEA: DNA test - Clear HSF4: DNA test - Clear MDR1: +/- DNA tested Litur: Black Tri, Svartur og tan, með blesu og kraga Red factored, NBT (DNA tested) Besti árangur ræktunardómur: opinn flokkur, 1 sæti, excellent, 1BR, Mstig, Cacib, BOB, BIG1, BIS2