Í dag eru 11 ár síðan fyrsta gotið í okkar ræktun fæddist, Stjörnugotið. 8 heilbrigðir gullmolar, 4 rakkar og 4 tíkur, undan Reese (ISCH ISVetCH RW-14 Thornapple Seduction) og Þengli (Heimsenda Ösku Illur).
Þau fengu öll alveg yndisleg heimili þar sem þau voru dekruð út í eitt og hafa upplifað endalaus ævintýri með sínu besta fólki. Þau fengu því miður mis mikinn tíma með okkur en elsku Kobbi, Johnny og Salma til hamingju með daginn ykkar og eigið góðan dag með ykkar besta fólki. Við kveikjum á kerti fyrir Æsu, Fróða, Zetu, Marley og Angöru sem munu án efa eiga góðan dag í draumalandinu með foreldrum ykkar, yngri systkinum og frændsystkinum. Kossar og knús á ykkur öll 😘❤️🐾
0 Comments
Þessi einstaki og sýningarglaði gullmoli hljóp sinn síðasta sýningarhring á Winter Wonderland sýningu HRFÍ í lok nóvember og er ekki hægt að segja annað en að hún hafi endað tæplega 10 ára sýningarferil með glæsibrag. En hún hafnaði í 2 sæti af 25 í keppni um bestu tík tegundar, varð BESTI ÖLDUNGUR TEGUNDAR og náði sér í nýjan titil Island Veteran Winner 2022. Hún var einnig heiðruð í lok sýningar sem 4 stigahæsti öldungur HRFÍ 2022. Þessum glæsilega árangri hjá gömlunni á heimilinu væri að sjálfsögðu ekki náð nema með frábærri teymisvinnu og getum við ekki sagt annað en að það sé einstakt teymi í kringum okkur. Takk elsku Gauja fyrir að ná fram því besta hjá henni í hringnum og takk elsku Theó fyrir snyrtingu og þinn þátt í þessu og drottningin er að sjálfsögðu fóðruð á Royal Canin frá Dýrheimum. -------------- This one of a kind gem ran her last ring at shows at the Winter Wonderland show in end of November. She ended her almost 10 years show carrier with a style when she became 2nd best female of breed out of 25 females and also became BEST OF BREED VETERAN and gained herself a new title Island Veteran Winner 2022. At the end of the show she was awarded as TOP 4 VETERAN of the year at our kennel club. We would not be celebrating these great results for our old lady except we had a great team with us. Big thanks to our dearest Gauja for showing her to perfection and also to our dearest Theodóra for grooming her and your part in this. Of course she is fed on Royal Canin from Dýrheimar. Í dag fagnar Sofie 5 ára afmælinu sínu. Þessi mikla gleðisprengja er búin að láta dekra við sig síðan hún vaknaði í morgun og liggur nú í andlegri íhugun við tærnar á mömmu sinni.
Hún er einstakur gleðigjafi, síkát og alltaf tilbúin í leik eða vinnu sem gerir hana að frábærri viðbót við fjölskylduna okkar. Hún er fædd í Frakklandi hjá Alyson Ferriére og kemur því frá sömu ræktun og Melody en dvaldi hjá Theodóru afmælissystur sinni í Þýskalandi þar til hún varð 7 mánaða gömul og mátti koma heim til okkar. Þau Fayro eignuðust sitt annað got í apríl s.l. en þá fæddust 4 Presleybörn, 2 tíkur og 2 rakkar, og eru þau einstaklega vel heppnuð eins og eldri systkini sín. Dagurinn verður eflaust fullur af dekri, leik og gleði eins og henni er einni lagið líkt en hún ætlar samt að gefa sér tíma til að fara í afmælisbað og verður eitthvað extra gott sett á diskinn hennar í kvöld. Til hamingju með daginn elsku besta Sofie okkar <3 Þessi mikli meistari á afmæli í dag og fagnar hann 8 ára afmælinu sínu og er því opinberlega orðinn öldungur. Við erum ákaflega heppin að hafa hann hér hjá okkur og verðum kærum vini okkar og meðeiganda að honum, Marko Ljutic, ævinlega þakklát fyrir að treysta okkur fyrir þessum einstaka gullmola. Lífsgleði hans fær mann alltaf til að brosa þar sem hann er einn glaðasti hundur sem ég hef kynnst og hann sýnir manni ást sína alltaf svo innilega. Við munum vera dugleg að knúsa hann í dag, hann fær að sjálfsögðu eitthvað gott að borða í kvöld og eins og eitt nýtt leikfang því bangsar og leikföng eru hans ær og kýr. Til hamingju með daginn elsku besti Fayro okkar, elskum þig endalaust 🥰 This one of a kind dog celebrates his 8th birthday today which means that he is officially a veteran. We are so lucky to have him here with us and will be forever thankful to our dear friend and co-owner in him, Marko Ljutic, for trusting us with this gem. He always puts a smile on your face as he is one of the happiest dogs I have met and he shows his love for you so strongly. We will give him endless cuddles today, he will get extra treats, some new toy as he loves toys. Happy Birthday our dearest Fayro we love you to the moon and back 🥰 Í dag fagna Izzy og systkini hennar úr Kvikmyndagotinu 10 ára afmælinu sínu. Kvikmyndagotið er annað gotið fætt okkur og voru þau alls 11, 6 rakkar og 5 tíkur. Foreldrar þeirra voru fallegu englarnir okkar þau Reese og Chase.
Þau fengu öll alveg yndisleg heimili þar sem þau hafa upplifað endalaus ævintýri með sínu besta fólki og að sjálfsögðu fengið nóg dekur. Nokkur þeirra hafa yfirgefið okkur og hlaupa nú um í draumalandinu með foreldrum þeirra. Izzy nýtur þess í botn að vera öldungurinn á heimilinu þó hún sé langt frá því að vera farin að sýna ellimerki. Gott sófakúr er í miklu uppáhaldi hjá henni ásamt allri útiveru og fær hún seint leið á því að hlaupa á eftir dóti út í vatn þó að henni finnist mjög leiðinlegt að fara í bað. Sýningarhringurinn er líka í miklu uppáhaldi hjá henni og hefur hún staðið sig frábærlega þar síðasta árið sem og árin á undan en hún stefnir að því að leggja tauminn á hilluna eftir þetta ár. Elsku Doddi, Gríma, Píla og Izzy til hamingju með daginn ykkar og eigið góðan dag með ykkar besta fólki. Við kveikjum á kerti fyrir systkini ykkar, mömmu og pabba sem munu án efa eiga góðan dag í draumalandinu með eldri systkinum ykkar og frændsystkinum. Kossar og knús á ykkur öll 😘❤️🐾 Undir lok ágúst fór fram NKU Norðurlandasýning HRFÍ á Víðistaðatúni. Við áttum nokkra glæsilega fulltrúa þar sem voru ræktun okkar til sóma, stóðu sig frábærlega og erum við í skýjunum með árangur þeirra. En allir hvolpar úr okkar ræktun fengu sérlega lofandi og öll sem voru sýnd í eldri flokkum fengu excellent. Dómari tegundar var Arvid Göransson, Svíþjóð. en það var Laurent Heinesche, Luxembourg, sem dæmdi bæði besta ungviði sýningar og besti öldungur sýningar.
Víkur Always On My Mind "Julí" stóð sig frábærlega á sinni fyrstu sýningu þegar hann var valinn besta ungviði tegundar og gerði sér svo lítið fyrir og verð besta ungviði dagsins á laugardeginum. Við erum ákaflega stolt af þessum árangri hjá þessum unga og efnilega gullmola en þetta er besti árangur sem hvolpur úr okkar ræktun hefur náð. Víkur American Beauty "Izzy" átti jafnframt góða daga á sýningunni en hún gerði sér lítið fyrir og varð besti öldungur tegundar og ávann sér því þátttökurétt í keppni um besta öldung sýningar á sunnudeginum. Hún geislaði í hringnum með Gauju sinni og hafnaði hún i 4 sæti um besta öldung sýningar. Ungviðaflokkur:
Ungliðaflokkur:
Opinn flokkur:
Meistaraflokkur:
Öldungaflokkur:
Við fórum jafnframt með ræktunarhóp sem samanstóð af þeim alsystkunum Körmu og Manna og Yrju hálfsystir þeirra. Þessi ungu og bráðefnilegu systkini sem tóku öll þátt í ungliðaflokki, stóðu sig frábærlega og urðu BESTI RÆKTUNARHÓPUR TEGUNDAR með mjög fallega umsögn frá dómaranum. Við erum ákaflega þakklát þeim glæsilega hóp af sýnendum sem ná alltaf fram því besta í hverjum hundi og ykkur eigendum fyrir að nenna standa í þessu stússi með okkur því án ykkar allra væri þetta ekki mögulegt. Hekla náði þeim árangri á Deildarsýningu Fjár- og hjarðhundadeildar að fá þriðja og síðasta íslenska meistarastigið sitt þegar hún varð besti hundur tegundar og er því orðin íslenskur meistari eins og foreldrar sínir.
Takk elsku Theo, Gauja, Ylfa Dögg og Bergdís fyrir að sýna prinsessuna okkar svona vel og landa þessum titli fyrir hana. ----------------- At the Herding Club Show last month Hekla gained her 3rd and last CAC and is now an Icelandic Champion like her parents. Big thanks to our dearest Theodóra, Gauja, Ylfa Dögg and Bergdís for always showing her to perfection and your part in her becoming a champion. Deildarsýning Fjár- og hjarðhundadeildar fór fram síðasta laugardag og áttu allir fulltrúar frá okkur frábæran dag þar. Dómari sýningar var Karen Mc Devitt frá Írlandi og þökkum við henni fyrir að meta hundana úr okkar ræktun.
Ungliðaflokkur:
Opinn flokkur:
Öldungaflokkur:
Við fórum jafnframt með ræktunarhóp sem samanstóð af þeim alsystkunum Körmu og Manna sem eru 16 mánaða og Yrju hálfsystir þeirra sem er 13 mánaða. Þessi ungu og bráðefnilegu systkini stóðu sig frábærlega og urðu BESTI RÆKTUNARHÓPUR TEGUNDAR og 3 besti ræktunarhópur sýningar með mjög fallega og greinagóða umsögn frá dómaranum. Þessum frábæra árangri væri að sjálfsögðu ekki náð nema fyrir þann frábæra hóp af sýnendum og eigendum sem við erum með í kringum okkur og alltaf til í að stússa í þessu með okkur. Jafnframt eigum við rætkendum okkar erlendis mikið að þakka. Hundarnir okkar og allir hundarnir úr okkar ræktun sem voru á sýningunni eru fóðraðir á Royal Canin. Um síðustu helgi fór fram Alþjóðleg og Reykjavík Winner sýning HRFÍ og áttum við nokkra fulltrúa þar. Samtals voru 53 ástralskir fjárhundar og 4 ræktunarhópar skráðir til leiks. Úr okkar ræktun voru 7 hundar skráðir í dóm og stóðu þau sig öll með sóma. Hlutu öll excellent og fengu mjög fallegar umsagnir. Dómari tegundar var Leif Herman Wilberg frá Noregi og Michael Leonard frá Írlandi dæmdi úrslit um besta öldung sýningar. Hæst ber þó að nefna árangurinn hjá öldungnum á heimilinu henni Izzy sem er að verða 10 ára en langt frá því að það sjáist á henni þegar hún er í hringum því hún veit fátt skemmtilegra en að hlaupa um sýningarhringinn með vinkonum sínum. En hún gerði sér lítið fyrir og varð 4 BESTI ÖLDUNGUR SÝNINGAR með Gauju sinni og erum við að rifna úr stolti yfir þessum árangri hennar og ekki skemmir að hún er ræktuð af okkur. Ungliðaflokkur:
Opinn flokkur:
Öldungaflokkur:
Við fórum jafnframt með ræktunarhóp sem samanstóð af þeim systkunum Körmu og Manna sem eru 15 mánaða og Yrju hálfsystir þeirra sem er 12 mánaða. Þessi ungu og bráðefnilegu systkini stóðu sig frábærlega og urðu BESTI RÆKTUNARHÓPUR TEGUNDAR með mjög fallega umsögn frá dómaranum "One male, two female with one father and two dams. All of excellent types and good similarity. Nice heads, good coat structure and movements. Correct coats" Það er ótrúlegt að hugsa til þess að fyrir ári síðan komu Súkkulaðibörnin í heiminn. Fæðing þeirra gekk eins og í sögu og leið tæpur klukkutími frá því fyrsti hvolpurinn kom þar til þau voru öll komin. Kvika stóð sig frábærlega í uppeldinu og stóð Fayro við hliðina á henni eins og stytta og veitti andlegan stuðning af hliðarlínunni á meðan hún sá um ungviðið. Þau búa öll á frábærum heimilum þar sem þau eru elskuð til tunglsins og til baka. Elsku Perla og Yrja til hamingju með daginn ykkar og ég veit að þið fáið eitthvað gott í tilefni dagsins. Varmi sem er í pössun hjá okkur þessa dagana, pabbi ykkar, amma og við hin sendum risa afmælisknús á ykkur í tilefni dagsins. |
Archives
February 2024
|